Almenn upplýsingagjöf um almenningssamgöngur á Íslandi er af skornum skammti. Í Reykjavík er reyndar tillölulega auðvelt að ramba inn á vef strætó, http://www.straeto.is/ sem kemur einnig upp ef slegið er inn bus.is.
En eins og með flest annað þá veistu ekki af því nema hafa fletta því upp, verið bent á það eða sagt frá því. Þetta á í mun meira mæli við um almenningssamgöngur út á landi. Þar þarftu að vita sérstaklega hvar á að leita. Nýflutt á Austurlands átti ég í miklum vandræðum með að finna upplýsingar um almenningssamgöngur í fjórðungnum. Ég leitað að Austurleið - átti auðvitað að leita að Austfjarðaleið, þvílík vitleysa að detta það ekki strax í hug. En sú síða sem ég fann með upplýsingum um Austfjarðaleið sýndi mér einungis upplýsingar um leiðir á milli Egilsstaða og Norðfjarðar og svo Egilsstaða og Breiðdalsvíkur. Ekki hugmynd um hvernig ég ætti að komast á Seyðisfjörð með rútu, eða Borgarfjörð, eða Djúpavog.... Komst svo reyndar seinna að því að engin rúta fer á Djúpavog en aðrir aðilar eru með sérleyfið á Borgarfjörð og Seyðisfjörð.
Þarf ekki að efla vitund fólks um almenningssamgöngur? Hvetja það til að nota þær, og gera því auðvelt fyrir að nota aðrar leiðir en einkabílinn?
Sem sérstaklega gott dæmi sem við höfum fengið í RTS verkefninu er verkefni sem samstarfsaðilar okkar í Skotlandi eru að vinna að.
Go Smart! verkefnið í Dumfries and Galloway. http://www.gosmartdumfries.co.uk/
Verkefnið snýst fyrst og fremst um að efla vitund fólks á öðrum samgöngumátum en einkabílnum. Í tenglsum við verkefnið hafa þeir sett á fót hjólaleigu, hvatt fólk til að hjóla, deila bílum saman, taka strætó eða ganga. Auks þess að hafa gefið út kynningarefni, gengið í hús og reiknað út sparnaðinn fyrir fólk.
Þetta er eitthvað sem mætti taka sér til fyrirmyndar! Nánari upplýsingar um þetta frábæra verkefni má finna á heimasíðu þess.


No comments:
Post a Comment