Það eru mjög mismunandi skoðanir á því hvað ferðir með almenningssamgöngum eða strætó eiga að kosta notandann. Sumir vilja meina að þær verði að vera fríar til að virka sem skildi. Að almenningssamgöngur séu fríar fyrir almenning er eitthvað sem þyrfti ekki endilega að vera lausnin eða það sem lokkar fólk að því að nota almenningssamgöngur. Menningin hér á Íslandi hefur alla tíð verið mjög bílvæn og það virðist vera í góðu lagi að setja peninga í breikkanir á vegum og mannvirkjum en síður í það að halda almenningssamgöngum uppi sem virka. Nú þegar kreppan hefur skollið hvað harðast á okkur.... og fólk hefur ekki lengur val um að nota almenningssamgöngur heldur fer það að vera nauðsyn. Þá er að sjálfsögðu líka skorið niður í þessum samgöngumáta. Þegar það þyrfti að vera að dæla í það peningum. Að styrkja almenningssamgöngur gæti verið ein af lausnum ríkisins til þess að "halda skjaldborg um heimilin". Við erum samt ekki að tala um að það ætti að vera frítt í þær, alls ekki. Það er eimmitt mjög mikilvægt að halda í virði þessara samgangna. Um leið og það er einnig mjög mikilvægt að þeir sem veita þjónustuna haldi í við nýjungar í greininni eins og internet í vagnanna, real time update og fleira.
Þetta er ÞJÓNUSTA og það ætti að vera litið á hana sem slíka. Þjónusta sem fólk má vera stolt af því að nota, þjónusta sem á að vera hægt að ganga að sem vísri, þjónusta sem í lagi er að borga fyrir.


